| Vestræn heimspeki Heimspeki 20. aldar Heimspeki 21. aldar |
|
|---|---|
| Nafn: | Barry Stroud |
| Fædd/ur: | |
| Skóli/hefð: | Rökgreiningarheimspeki |
| Helstu ritverk: | Hume; The Significance of Philosophical Scepticism; The Quest for Reality: Subjectivism & the Metaphysics of Colour |
| Helstu viðfangsefni: | frumspeki, þekkingarfræði, þekkingarfræði |
Barry Stroud er kanadískur heimspekingur sem hefur einkum fengist við frumspeki, hugspeki, þekkingarfræði og efahyggju.
Stroud lauk B.A.-gráðu í heimspeki frá Toronto-háskóla og doktorsgráðu í heimspeki frá Harvard-háskóla. Frá 1961 hefur Stroud kennt heimspeki við Kaliforníuháskóla í Berkeley. Árið 2007 var hann útnefndur Willis S. og Marion Slusser-prófessor í heimspeki við heimspekideild Kaliforníuháskóla í Berkeley.
Bók Strouds um Hume, sem kom út árið 1977, vann Matchette-verðlaunin árið 1979.